|
|
11.07.2007 00:35:40 / Tinna
fór að kafa á vestfjörðum um helinga, ég og ingó vorum í gúddí
fíling að kafa og fundum bara alltíeinu skipsflak, geggjað!!! það
er bara once in a lifetime shit! ef maður er heppinn... sem
kafari.... check it out man:
http://bb.is/?PageID=26&NewsID=102883 aukafrétt
http://bb.is/?PageID=26&NewsID=102919
»
27.03.2007 08:01:23 / Tinna
»
06.02.2007 16:28:14 / Tinna
Hér er stuttmynd af mér að freediva í Þingvallavatni
http://www.youtube.com/watch?v=wnXEaTJKbHg
»
06.02.2007 16:25:16 / Tinna
Kom í fréttunum á Stöð 2 um daginn, að freediva (halda niðrí mér
andanum að kafa niður) í blautgalla í Þingvallavatninu fallega sem
var mjög svo kallt.
http://visir.is/apps/pbcs.dll/section?Category=VEFMIDLAR&Template=VefTV&ChannelID=10&ProgID=28795&ProgType=1002&ItemID=25234&progCItems=1
»
24.01.2007 12:15:17 / Tinna
hm jæja, hef ekki skrifað í hálft ár, og svo sem ekki svo mikið
merkilegt að segja það sem maður er bara í sinni daglegri rútinu
hér á Íslandi.
En allavega, maður er bara orðinn dead serious með gaur, og það
gengur svo vel að ég er ekki að trúa því sjálf. Ég sem hélt bara að
allir gaurar væru bara hálvitar og að ég var nú eiginlega bara búin
að sætta mig við að vera bara ein um ævina, var að íhuga að vera
svona crazy cat lady og fá mér einstaklings íbúð með fullt af
kisum.
En nú er ég bara farin að leita að íbúð til að kaupa með gaurnum,
sem heitir Ingó Olsen fyrir ykkur sem viljið vita. Hann er mjög
cool gaur og er svona frekar frægur í brettabransanum á Íslandi,
stundar mikið hjólabretti, snjóbretti og surf. Nóg um það, það
gengur bara allt mjög vel og smellpössum saman út á næstum öll
smáatriði sem skiptir okkur bæði mestu máli í lífinu...
Ég var einmitt að kaupa mér surf bretti og surf galla, það er
ekkert smá gaman, en erfitt að læra. Er líka búin að fá mér
longboard til að krúsa um götur miðbæjarins og er búin að reina að
skeita á hjólabretti á rampi, en veit ekki hvort það sé alveg fyrir
mig... Fór í helgarferð til Akureyrar til að læra á snjóbretti og
það er líka alveg fáranlega gaman. Var með rassahlíf og tókst samt
að bráka á mér rófubeinið og small á hausinn líka og vankaðist vel,
fer með hjálm næst.... En það er svo lítill snjór að það eru ekki
mikil tækifæri til að læra að renna sér.
Svo er maður nú alltaf að kafa eitthvað og þannig, og klifra af og
til. En skráði mig í Björgunarsveit í haust og er á fullu í
prógrammi í því. Ýkt gaman að læra allskonar fjallamensku, klifur,
göngu, snjóflóð, veður og bara allskonar útivistardót sem maður er
á námskeiðum á í 1-2 ár, alveg ókeypis en maður þarf reyndar að
eiga allt dót í þetta sjálfur sem er frekar dýrt... en er búin að
læra mjög mikið á þessu, það er svo gaman að útivist á Íslandi sem
er svo fallegt og býður uppá svo mikið.
En ég verð að fara skoða mér eitthvað sniðugt nám, það fer að koma
nóg að þessum leikjum mínum að ferðast um heiminn. En er að íhuga
nám í ástralíu eða nýja sjálandi, en það var loforð við sjálfan mig
að læra eitthvað serious career dæmi áður en ég verð þrítug, en
ennþá 5 years to go....
Dauður tími núna í vinnunni, þar sem maður er bara í túrismanum,
svo að maður fer að skella sér til útlanda fyrir næsta season, kem
heim aftur í apríl. En maður fer þá að blogga eitthvað aftur þegar
maður heldur á vit ævintýranna.
Svo reynir maður að læra á kajak núna í sumar
Anyways, talk to you soon.
over and out....
»
07.07.2006 23:29:35 / Tinna
Jaha, langt sidan eg skrifadi sidast. Tad er ekki isl stafir a
tessu lyklabordi, fokked up, buin ad messa eitthvad i tvi ovart
held eg. Eg er bara buin ad vera vinna a fullu i turismanum eins og
venjuelga, enginn timi i neitt annad en ad vera leika ser uti a
sumrin, en tad er ykt gaman. Er ordin river rafting guide, fer
nidur hvita, svo er eg bisljtori og nattlega snorkelingn og
kofunarguide. Svo er madur bara i hinu og tessu. Er ad reyna ad
koma mer inni fleiri sport eins og alltaf. For ad profa hjolabretti
um daginn, i ramp palli, er enn med glodurauga og nokkra marbletti
eftir tad. Madur fer vonadi aftur og aefir sig, spuring um ad vera
med hjalm ta.... For og profadi straumvatnskajak uti sjo, madur
tarf ad laera kajakveltuna og svona til ad fara i ar, skelli mer
vonandi nidur Hvita a kajak i sumar. En er farin ad laera surfa
sma, tad er bara nokkud vel geggjad gaman, er farin ad na nokkrum
oldum og tad er massivt, tarf ad aefa mig ad na ad standa upp og
halda balans. Svo er madur bara alltaf eitthvad ad slaepast, ykt
gaman a islandi a sumrin!! er a fullu ad vinna nuna, servera
turista, madur kemst samt kannski eitthfvad ut a vit aevintyranna i
sept... Hey, Tinna er bara farin ad deita gaur, oh my gad, trui tvi
eigilega ekki sjalf, buin ad vera single i meira en 3 ar.... spenno
»
05.06.2006 17:59:57 / Tinna
Vill enginn kisurnar í alvöru!! Þarf þá að láta lóga þeim í
vikunni....
»
30.05.2006 20:51:24 / Tinna
Jæja, ég er að gefa tvær ýkt sætar loðhnoðrakisur. Sjáðu bara!!
http://www.flickr.com/photos/34494428@N00/
Þær eru 1 og 3 ára og eru blandaðar af norskum skógarketti og
húsketti eða eitthvað álíka. Ein þeirra er ýkt mjúk og loðin eins
og norskur skógarköttur, extra loðið skott og smá þjappað fés,
grábrún með svörtur bröndum og alveg hvít undir. Yngri kisan er
aðeins líkari húsketti, en er líka grábrún með svörtum bröndum,
bara ekki eins hvít undir og ekki eins loðin.
Þær eru báðar læður sem sagt, báðar húsvanar, kunna alla venjulega
hússiðina og eru aldar upp sem innikisur og virðast bara mjög
hamingjusamar með það, reyna ekkert að fara út eða neitt. Þær hafa
ekki farið í ófrjósemisaðgerð en eru á pillunni, maður þarf að
troða því uppí þær einu sinni í viku. Það kostar 1.560 kr á ári að
hafa eina kisu á pillunni, ófrjósemisaðgerð kostar 10.000kr. Þær
eru góðar vinkonur en ég er að reyna að finna heimili fyrir þær
báðar, en ég gef þær annað hvort saman eða í sitthvoru lagi, alveg
sama. En þeim fylgir einn kattasandkassi, matarskál og vatnsskál.
Þær eru svo rosa sætar og ég get ekki verið með þær en vil alls
ekki láta lóga þeim og myndi gera mikið fyrir að finna gott heimili
fyrir þær svo hafið bara samand ef það er eitthvað varðandi
kisurnar, og ef þið viljið koma og skoða þær up close and personal
þá er bara að koma heim til mín í miðbænum einhverntíma eftir kl
18. Er samt að vinna rétt hjá svo ég gæti alltaf farið heim hvenær
sem er til að sýna kisurnar.
Endilega látið heyra í ykkur ef þig langar í kisu eða veist um
einhvern. Hér er linkur á myndaalbúm fyrir kisurnar, rosa
sætar... http://www.flickr.com/photos/34494428@N00/
»
17.05.2006 16:27:53 / Tinna
aaaaaaaaah, kisu overload heima hjá mér. Ég á hvíta kisann Gutta
og bróðir minn sém ég bý með á svarta kisan Mola. Þeir eru rosa
góðir vinir og líður rosa vel hjá okkur, eru venjulegir götu
húskettir.
En svo, vinur minn var að láta mig fá tvo í viðbót. Litli 8 ára
strákurinn hann fékk bráðaofnæmi og fór uppá spítala. Ég er að
geyma kisurnar þar til finnst eigandi, vil ekki láta lóga þeim,
þeir eru svo sætir. Ýkt sætir tvo norska skógarketti, stelpukisar
sem eru svo sætir og góðir, vanar innikisur sem kúra hjá manni.
Þeir eru gráir með svörtum bröndum og alveg hvítir undir, og svona
ýkt litlir og mjúkir með extra fluffy skott.
Veit einhver um einhvern sem langar i kött???
kveðja frá Kattholti
»
28.04.2006 20:39:13 / Tinna
Heeeeeeeeeeyyy! Það var alveg jafnt á milli þess að vera
túristaguide, atvinnukafari og vinna með fötluðum börnum. Flugmaður
þar á eftir og síðast fallhlífastökkvari. Hver hélt að ég væri að
fara vinna með fötluðum börnum!! ekki það að ég sé rasisti, en
kommon, þekkið þið mig það illa, haldiði að ég hafi taugar í það??
En ég er allavega nú þegar túristaguide, og nú þegar að vinna við
köfun, fer að kafa með túrista og er einnig köfunarkennari. Svo
langar mig að verða flugmaður þegar ég verð stór, og er næstu árin
á leiðinni að læra fallhlífastökk, veit ekki hvort ég eigi nokkuð
eftir að vinna við það sko, hef engan tíma líka til að bæta við mig
björgunarsveit þó það væri nú gaman. En vinna með börnum, og ona
það fötluðum börnum. i don't see that happening.... En anayways,
föstudagur, chilla heima til tilbreytingar eftir alltof mikið djamm
um páskana, er líka að fara vakna snemma til að guida 8 tíma ferð.
Ég er sjáðu til loksins komin með meirapróf! wwwwuuuuuhaaaa. Svo á
morgun er ég að fara á risa super truck ó jeah, I love biiiiig
cars. Ég fer með ríka kana að kafa á Þingvöllum svo förum við uppá
Langjökul á snjósleða, svo eitthvað að stoppa að guida fallega
ísland þar á milli. What a typical saturday. Enn er ekkert bókað á
mig á sunnudaginn, svo maður kannski skellir sér á
laugardagsfyllerí. Over and out, Tinna the Adventure Expert.
»
22.04.2006 13:59:54 / Tinna
Hæ, hæ,
Jæja, hvað er maður búinn að vera að gera af sér í heilan
mánuð....
Er búin með kvöldskólann fyrir meiraprófið, búin að fara í skrifleg
próf og læra fullt. Veit alveg allt um umferðina og lögin, svo
bifreiðatækni og fullt þannig, leiðinlegt en nothæft. Nú er ég að
verða búin í ökutímum og ætti að vera í verklegt ökupróf í næstu
viku. Þá má ég keyra eins stóra bíla og ég vil, jei. En núna verð
ég aðallega að keyra bíla úr vinnunni, svona econoliner sem stendur
á Arctic Rafting og Cintamani.
En, í byrjun apríl fór ég loks að byrja að vinna, koma upp búðinni
á Laugavegi 11. Við erum með umboðssölu fyrir Cintamani, svo er það
svona ævintýra túristaskrifstofa. Og skrifstofan mín er á bakvið á
annari hæð. Ég fæ svona nafspjald í næstu viku, Tinna - Adventure
Expert, ú jeah. Fyrst var ég bara svona handy man, koma upp
búðinni, stússast í því, bora, skrúfa, mála, sendast hingað og
þangað.
Svo er ég stundum í búðinni, kannst samt ekki svo mikið að selja
svona föt en fæ allavega að tala við útlendinga.
Svo er ég bara uppá skrifstofunni minni að stússast. Svara meilum,
uppfæra heimsíðuna www.arcticrafting.is, fara yfir nýja bæklinginn,
sumar season 2006, allt að fara gerast. Svo eru að fara að byrja
ferðir þá fæ ég að vera útivistarguide. En við erum með allt
mögulegt uppá að bjóða, gönguferðir, hellaferðir, snorkeling,
köfun, rafting, gljúfraferð, ísklifur, klettaklifur, hjólaferðir og
meira og meira. Og þetta geri ég og fæ borgað fyrir, yesss.
Svo kom vinur minn Marco frá Ítalíu í heimsókn til mín í
páskafríinu, úff þá var sko djammað, hverjum degi alla daga, og ég
fékk svo góðan ítalskan mat, mmmm.
Og, svo er maður alltaf eitthvað að stússast í hinu og þessu, fyrir
sportkafarafélagið og þannig. Fór líka í ísklifur um daginn,
síðasti séns fyrir fossaklifur fyrir sumarið, þá verður bara
klettaklifrið að taka við, svo vonandi að kafa fullt. Það var sko
geggjað gaman að klifra því ég fór bara með vini mínum, þá er það
meira extreme heldur en þegar maður þarf alltaf að fara bara í
túristaferðir. Fórum inní Hvalfjörð, þar var mjög snjóþungt og smá
snjóflóðahætta, fórum efst uppí fjallið í brattan, 600m hæð, og þar
var klifrað yeeeha.
Hmm what else, sumarið fer að koma, þá verður helvíti nóg að gera.
Svo verður maður að fara plana næstu utanladsferð eftir
sumarið.
O well, bless að sinni. Gleðilegt sumar!!!
»
27.03.2006 14:06:05 / Tinna
Jæja, það er svo erfitt að svona readjust hérna í þessu veðri
nýkomin frá karabíska. En ísland er jú ágætt. Maður er búinn að
hitta allt liðið, taka á því á djamminu. Svo er ég að fara vinna
sem einhver ævintýra túrista gella. Er núna bara í kvöldskóla í
meiraprófi, það er alveg meira en mánaðardæmi. En eftirá fæ ég að
keyra risa stóra bíla jei. Svo er maður bara alltaf að stússast smá
í kringum köfunina.
mmmmm, svo náttlega best af öllu, hanga með Gutta kisa, hann er sko
frábær.
Maður er strax farinn að plana næstu ferð. Suður amerika næsta
vetur, whooha. Held ég skelli mér a karnivalið og labba inka
trailið og verð að fara til Chile að hitta bestu vikonu mína sem á
heima þar ásamt fleiru og fleiru.
Allavega, það er eiginlega bara gaman að blogga þegar maður er að
ferðast. Það kommentar enginn hjá mér líka hvort sem er.....
»
22.03.2006 01:54:19 / Tinna
Einhver hint um hvernig maður verður hamingjusamur??
»
14.03.2006 18:53:57 / Tinna
jæja, flestir í skoðanakönnunni héldu að dauðdagi minn ætti að
verða af árásaförum einhvers dýrs.... hmm vonandi hákarl eða rándýr
í einhverjum frumskógi, eða næst vinsælasti kosturinn, deyja úr
elli. Það var ekki talið líklegt að það yrði af háskaíþróttum, good
shit. Takið þátt í nýju könnunninni
»
11.03.2006 20:44:11 / Tinna
Hey, enginn ad kommenter meir.....
Allavega, er ad chilla i New York nuna, ykt cool borg. Svoltid
leid yfir tvi ad fara fra karabiska, en tetta var allavega
aedislegt fri, madur getur ekki verid i paradis ad eilifu.... eda
ju reyndar, eg gaeti unnid sem kafari hmmmm.......
En Island er nu lika skrambi gott land, hlakka til ad sja
alla.
Og hey, er einhver sem vill koma ad laera ad kafa??? eg er ad
fara byrja namskeid sem fyrst, er strax komin med einhverja
nemendur.
Allavega, verd komin heim a manudagsmorgun, latid heyra i ykkur.
Adios
»
Síður: 1 2 3
|
|